Starfsemi

Laera_saman
Laera_saman

Margþættur rekstur

FS hefur um árabil byggt upp og rekur margháttaða þjónustu fyrir stúdenta. Þá beitir FS sér eftir þörfum fyrir því að ný fyrirtæki í þágu stúdenta séu stofnuð. FS styrkir Stúdentaráð Háskóla Íslands og félög stúdenta við HÍ með útgáfustyrkjum eða á annan hátt.

Félagsstofnun stúdenta var stofnuð með lögum nr. 33, 1968 og tók formlega til starfa 1. júní sama ár. Aðild að stofnuninni eiga allir skrásettir stúdentar við Háskóla Íslands, Háskólinn og menntamálaráðuneytið. Í stjórn FS eiga sæti fimm fulltrúar. Þrír fulltrúar eru tilnefndir af Stúdentaráði HÍ, einn af HÍ og einn af menntamálaráðuneytinu. Fulltrúar Stúdentaráðs í stjórninni nú eru Davíð Gunnarsson stjórnarformaður, Haukur Agnarsson og Sigurður Örn Hilmarsson. Fulltrúi Háskólans er Baldur Þórhallsson og fulltrúi menntamálaráðuneytis er Atli Atlason.

Nú árið 2009, rekur FS: Bóksölu stúdenta, Kaffistofur stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagarða, Stúdentamiðlun og Hámu.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: