Fréttir

Stúdentagarðar

Breyting á úthlutunarreglum Stúdentagarða

24.5.2006

Frá og með 1. júní n.k. taka gildi nýjar úthlutunarreglur fyrir Stúdentagarða Félagsstofnunar stúdenta. Um stefnubreytingu í úthlutun er að ræða og gerð til að auka möguleika stúdenta af höfuðborgarsvæðinu á úthlutun einstaklings- og paríbúða á stúdentagörðum við Háskóla Íslands. Eru breytingarnar fyrsta skrefið í verkefni sem miðast af því að leysa úr húsnæðisvanda stúdenta og útrýma biðlistum.

Sökum mikillar eftirspurnar og takmarkaðs framboðs á stúdentaíbúðum þarf FS að forgangsraða á biðlista. Þannig hafa stúdentar af landsbyggðinni aðallega átt möguleika á úthlutun einstaklings- og paríbúða en höfuðborgarbúar litla.

Með tilkomu nýs stúdentagarðs, Skuggagarðs, sem nú rís við Lindargötu og verður tekinn í notkun í haust, gefst loks kostur á að hefja leiðréttingu ójafnvægis sem ríkir í úthlutun. Mun framvegis 80% af nýju húsnæði úthlutað til íbúa á höfuðborgarsvæðinu þar til eðlilegt jafnvægi næst og framboð verður fullnægjandi. Er hlutfallið í samræmi við hlutfall höfuðborgarbúa sem stunda nám við HÍ.

Stefna FS er að halda uppbyggingu stúdentagarða áfram þar til allir stúdentar sem kjósa að búa á görðum eiga þess kost. Talið er að FS þurfi að eiga húsnæði fyrir 15% stúdenta til að uppfylla þörfina. Er það sú þörf sem kannanir hafa greint, svo og er það í samræmi við reynslu nágrannalandanna, en í dag getur FS boðið 8% stúdenta við HÍ húsnæði. FS bíður nú eftir úthlutun frekara byggingasvæðis en fjármögnun framkvæmda er fyrir hendi.

Frá og með 1. júní kl. 00.00 taka nýjar reglur gildi og verður þá unnt að sækja um samkvæmt þeim. Gildir sú tímasetning jafnframt fyrir nýnema sem hyggjast hefja nám haustið 2006 og geta þeir þá einnig sótt um húsnæði. Umsóknum skal skilað rafrænt á síðunni www.studentagardar.is.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: