Fréttir
FS yfirtekur rekstur Leikgarðs
Þann 1. september n.k. mun Félagsstofnun stúdenta yfirtaka rekstur Leikgarðs en samningar tókust um kaupin við Menntaráð Reykjavíkur í apríl s.l.
Markmiðið með kaupum FS á Leikgarði er að fjölga plássum fyrir yngri börn stúdenta eða aldurinn sex mánaða til tveggja ára. Mikil þörf eru á rýmum fyrir þennan aldur og biðlistar langir. Að auki er tilgangur með kaupunum sá að flytja rekstur Efrihlíðar úr núverandi húsnæði á Leikgarð en núverandi húsnæði hefur verið tímabundinn kostur og ávalt staðið til að finna starfseminni hentugra framtíðarhúsnæði.

