Fréttir

Nafnar

Skuggagarðar opnaðir

6.9.2006

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri í Reykjavík, bauð stúdenta við Háskóla Íslands velkomna sem nýja íbúa í miðbæ Reykjavíkur í athöfn sem fram fór á Skuggagörðum, nýjum Stúdentagörðum FS við Lindargötu, þriðjudaginn 29. ágúst s.l. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson stúdent og íbúi á Skuggagörðum tók á móti nafna sínum fyrir hönd íbúa.

Flutningur stúdenta á Skuggagarða felur í sér tímamót í byggingstarfsemi FS sem hefur aldrei áður byggt stúdentagarða fyrir utan háskólalóðina. Þegar stúdentagarðahverfið við Eggertsgötu var fullbyggt óskuðu stúdentar eftir lóð í miðborginni þar sem gott aðgengi væri að verslunum og stutt í strætisvagnastöðvar. Samræmdust óskir stúdenta stefnu borgarinnar um þéttingu byggðar og í kjölfarið var FS úthlutaður byggingarreitur við Lindargötu.

Húsin sem eru þrjú, Lindargata 42, 46 og 46a, eru með samtals 96 einstaklingsíbúðum, þar af þremur fyrir fatlaða. Byggingafyrirtækið Mótás byggði húsin en um hönnun sá Teiknistofan ASK arkitektar. Húsin eru fjórar til sex hæðir, öll lyftuhús en hver íbúð er um 37 fermetrar. Byggingarframkvæmdir hófust í ágúst 2005 og tóku því aðeins eitt ár.

Garðarnir eru fjármagnaðar með lánum frá Íbúðalánasjóði, sem lánar 90% af byggingarkostnaði en það sem á vantar leggur FS til. Byggingakostnaður var 838,9 milljónir.

Stefna FS er að halda uppbyggingu stúdentagarða áfram þar til allir stúdentar sem kjósa að búa á görðum eiga þess kost. Leigueiningar FS eru nú 731 talsins og íbúar um 1.200 en um 700 voru eftir á biðlista við úthlutun nú í haust.Talið er að FS þurfi að eiga húsnæði fyrir 15% stúdenta við HÍ eða 1.500 – 1.600 til að uppfylla þarfir næstu ára en í dag getur FS boðið um 8% stúdenta húsnæði. FS bíður nú eftir úthlutun frekara byggingasvæðis en fjármögnun framkvæmda er fyrir hendi.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: