Fréttir
FS tekur við rekstri Leikgarðs
Félagsstofnun stúdenta tók við rekstri leikskólans Leikgarðs s.l. föstudag, 1. september. Nýr leikskólastjóri Leikgarðs er Þórdís Hauksdóttir en hún hefur um árabil starfað hjá FS sem aðstoðarleikskólastjóri á Sólgarði.
Flutningur leikskólans Efrihlíðar stóð yfir á Leikgarði í síðustu viku og fengu börn og starfsfólk af Efrihlíð því nokkra daga til að kynnast nýju húsnæði áður en FS tók við rekstrinum. Smávægilegar breytingar tengdar flutningnum munu standa yfir næstu daga á þeim deildum sem yngstu börnin dvelja. Húsnæði og starfsemi deildar eldri barna á Leikgarði verður óbreytt.
Nýtt símanúmer verður á Leikgarði, 551 8560, en það er númerið sem áður var á Efrihlíð. Þá fær skólinn nýtt netfang, leikgardur@fs.is.

