Fréttir
Afhending Verkefnastyrks FS
Verkefnastyrkur Félagsstofnunar stúdenta var veittur föstudaginn 2. mars s.l.
Arnþrúður Ingólfsdóttir hlaut styrkinn að þessu sinni fyrir BA ritgerð sína í heimspeki " Í krafti margbreytileikans. Kenningar Iris Marion Young um stjórnmál mismunarins og lýðræði sem nær til allra ".
Í ritgerðinni er fjallað um kenningu Young um lýðræði sem snýst um að nýta skuli félagslegan margbreytileika samfélagsins til að auðga og styrkja lýðræðislega samræðu og ákvarðanatökur, svo lýðræðið geti náð til allra. Hluti af því er að gera fulltrúum minnihlutahópa kleift að hafa meiri áhrif á lýðræðislegar ákvarðanatökur. Til að hægt sé að nýta margbreytileika samfélagsins til góðs þarf að gæta að því að minnihlutahópar eru ekki skýrt aðgreinanlegar heildir sem deila reynslu og sjálfsmynd. Er verkefnið þverfagleg nálgun á lýðræði sem tengir saman heimspeki, kynjafræði og félagsfræði. Er ályktun Arnþrúðar að lýðræði, sem ekki tekur tillit til félagslegs mismunar, sé að einhverju leyti í sama vanda og pólitík minnihlutahópa sem stundum byggir á of þröngum skilningi á félagshópi. Ef ekki sé tekið tillit til margbreytileika innan félagshópa er hætta á að þeir sem valdamestir eru innan þeirra, í krafti stéttar, uppruna eða annars skilgreini þarfir og markmið hópsins og yfirgnævi lágværari raddir. Að sama skapi, ef skilgreining á hvað gerir þjóð að þjóð sé of einsleit, ýti það undir viðhald valds hjá ráðandi hópum og útiloki eða jaðarsetji aðra. Þurfi stjórnvöld og almenningur því að vera meðvituð um að allir, ekki bara þeir sem tilheyra minnihlutahópum, tilheyra mörgum félagshópum sem gefur þeim einstakt sjónarhorn og þekkingu á samfélaginu.
Leiðbeinandi Arnþrúðar var Sigríður Þorgeirsdóttir, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands.
Verkefnastyrkir Félagsstofnunar stúdenta eru veittir þrisvar á ári. Markmiðið með styrkjunum er að hvetja stúdenta til markvissari undirbúnings og metnaðarfyllri lokaverkefna. Jafnframt að koma á framfæri og kynna frambærileg verkefni. Hver styrkur nemur kr. 150.000.

