Fréttir
Umsóknir um Verkefnastyrk FS
Frestur til að sækja um verkefnastyrk FS vegna útskriftar í október rennur út fimmtudaginn 11. október kl. 16. Einn styrkur verður veittur að þessu sinni fyrir BA eða BS verkefni. Verður honum úthlutað 25. október.
Styrkurinn nemur kr. 150.000. Tvenns konar BA og BS verkefni eru styrkhæf. Annars vegar lokaverkefni og hins vegar verkefni sem unnin hafa verið á námsferlinum í greinum þar sem nemar vinna ekki eiginlega lokaverkefni og verkefni veiti sex einingar eða meira. Skilyrði er að umsækjandi útskrifist í október 2007. Meistara- og doktorsnemar sem útskrifast á þessu skólaári, þ.e. á tímabilinu eftir útskrift í júní 2007 til og með útskrift í júní 2008, geta sótt um í júní 2008.
Leiðbeiningar við að útbúa umsókn má sjá hér á síðunni undir Verkefnastyrk.
ISS Student Project Grant BS and BA students graduating in October 2007 may now apply for the Student Project Grant. One grant will be awarded this time, totalling150,000 ISK. Applications must reach Icelandic Student Services, Student Service Centre, Hringbraut, 101 Reykjavík, Iceland, no later than 11. October 2007. If you do not understand the instuctions above but want to apply please send me an e-mail, rebekka@fs.is.

