Fréttir

Umsóknir um Verkefnastyrk FS í febrúar 2008

3.1.2008

Frestur til að sækja um verkefnastyrk FS vegna útskriftar í febrúar 2008 rennur út fimmtudaginn 7. febrúar kl. 16. Einn styrkur verður veittur að þessu sinni fyrir BA eða BS verkefni. Verður honum úthlutað 21. febrúar. Styrkurinn nemur kr. 150.000. Tvenns konar BA og BS verkefni eru styrkhæf. Annars vegar lokaverkefni og hins vegar verkefni sem unnin hafa verið á námsferlinum í greinum þar sem nemar vinna ekki eiginlega lokaverkefni og verkefni veiti sex einingar eða meira. Skilyrði er að umsækjandi útskrifist í febrúar 2008. Meistara- og doktorsnemar sem útskrifast á þessu skólaári, þ.e. á tímabilinu eftir útskrift í júní 2007 til og með útskrift í júní 2008, geta sótt um í júní 2008. Leiðbeiningar við að útbúa umsókn má sjá hér á síðunni undir Verkefnastyrk.

ISS Student Project Grant BS and BA students graduating in February 2008 may now apply for the Student Project Grant. One grant will be awarded this time, totalling150,000 ISK. Applications must reach Icelandic Student Services, Student Service Centre, Hringbraut, 101 Reykjavík, Iceland, no later than 7. February 2008. If you do not understand the instuctions above but want to apply please send me an e-mail, rebekka@fs.is.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: