Fréttir
Verkefnastyrk FS í febrúar 2008 úthlutað
Verkefnastyrkur Félagsstofnunar stúdenta var veittur þriðjudaginn 4. mars.
Ásdís Jóna Sigurjónsdóttir hlaut styrkinn fyrir BA ritgerð sína í stjórnmálafræði “Eru tengsl milli kynferðis og árangurs í prófkjörum stjórnmálaflokka?“.
Verkefni Ásdísar er mikilvægt framlag til umræðunnar um stöðu kvenna í íslenskum stjórnmálum. Tekur hún til skoðunar eina þeirra skýringa sem settar hafa verið fram á litlum hlut kvenna, þ.e. að konur standi verr að vígi en karlar í prófkjörum stjórnmálaflokka.
Ásdís lagði í umfangsmikla gagnasöfnun um prófkjör allra þeirra flokka sem héldu prófkjör og frambjóðendur þeirra í aðdraganda síðustu tveggja kosninga til Alþingis. Safnaði hún upplýsingum um alla frambjóðendur í prófkjörunum og á hvaða sæti þeir stefndu auk annarra gagna.
Greining á gögnunum sýndi fram á að konur voru ekki með marktækum hætti minna líklegar til að ná því sæti sem þær stefndu á, á framboðslista flokksins, en karlar. Á grundvelli þeirra gagna sem unnið var með stóðu konur og karlar nokkuð jafnt að vígi er kom að árangri í prófkjörum og var hlutfall þeirra karla og kvenna sem náðu því sæti sem sóst var eftir nánast það sama bæði fyrir Alþingiskosningarnar 2003 og 2007.
Leibeinandi Ásdísar var Indriði H. Indriðason dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Verkefnastyrkir Félagsstofnunar stúdenta eru veittir þrisvar á ári. Markmiðið með styrkjunum er að hvetja stúdenta til markvissari undirbúnings og metnaðarfyllri lokaverkefna. Jafnframt að koma á framfæri og kynna frambærileg verkefni. Hver styrkur nemur kr. 150.000.

