Fréttir
Háma og Kaffistofur stúdenta í sumar
Kaffistofur stúdenta í Árnagarði, Eirbergi, Háskólabíói, Læknagarði og Odda verða lokaðar í sumar. Kaffistofan í Öskju verður opin kl. 10 – 14 virka daga í júní, lokað verður í júlí og fram yfir miðjan águst en opnað aftur 18. ágúst. Opið verður í Hámu kl. 9 - 17 alla virka daga í sumar.
Kaffistofurnar opna aftur þegar kennsla hefst í haust.

