Fréttir
Stúdentaafsláttur í Hámu
Vegna almennra hækkana á vöruverði og vegna breytinga sem ríkisskattstjóri hefur gert á skattaumhverfi Hámu, mun verð hækka í Hámu fimmtudaginn 28. ágúst. Sú breyting verður einnig gerð að stúdentar munu, gegn framvísun stúdentaskírteins, njóta sérkjara og fá afslátt af heitum mat, súpu og kaffi. Ef stúdentar framvísa skírteini munu þeir fá kaffi á sama verði og fyrr, verð á súpu mun hækka um 20 krónur og á heitum mat um 100 krónur.
Stúdentar njóta afslátta á eftirtöldum vörum:
Heitur matur: Stúdentaverð kr. 650, almennt verð kr. 800.
Súpa dagsins: Stúdentaverð kr. 300, almennt verð kr. 400.
Uppáhellt kaffi: Stúdentaverð kr. 85, almennt verð kr. 110.
Sérmalað kaffi: Stúdentaverð kr. 170, almennt verð kr. 220.
Athugið að afsláttur verður aðeins veittur ef stúdentaskírteini er framvísað.

