Fréttir
Tónleikar í tilefni af afmæli FS
Í tilefni af 40 ára afmæli Félagsstofnunar stúdenta bjóða FS og Kaupþing stúdentum á tónleika á Háskólatorgi.
Miðvikudagurinn 3. sept. kl. 12. Blústónleikar. Kristjana Stefánsdóttir söngkona ásamt Agnari Má Magnússyni hammondorgelleikara og Valdimari Kolbeini Sigurjónssyni bassaleikara.
Fimmtudagurinn 4. september kl. 16 – 18. Stórtónleikar með hljómsveitinni Hjaltalín. Tilboð á Hámubarnum.
Kaffibarþjónar frá Te & Kaffi og FS bjóða uppá Fairtrade kaffi og köku á torginu, frá kl. 13 báða dagana, á meðan birgðir endast.

