Fréttir

Verkefnastyrkur FS í október 2008

26.9.2008

Verkefnastyrkur FS Frestur til að sækja um verkefnastyrk FS vegna útskriftar í október rennur út fimmtudaginn 9. október n.k. Einn styrkur verður veittur að þessu sinni fyrir BA eða BS verkefni. Verður honum úthlutað 23 október. Styrkurinn nemur kr. 150.000. Tvenns konar BA og BS verkefni eru styrkhæf. Annars vegar lokaverkefni og hins vegar verkefni sem unnin hafa verið á námsferlinum í greinum þar sem nemar vinna ekki eiginlega lokaverkefni og verkefni veiti sex einingar eða meira samkv. gamla einingakerfinu en 12 samkv. því nýja. Skilyrði er að umsækjandi útskrifist í október 2008.

Meistara- og doktorsnemar sem útskrifast á þessu skólaári, þ.e. á tímabilinu eftir útskrift í júní 2008 til og með útskrift í júní 2009, geta sótt um í júní 2009.

Styrkurinn nemur kr. 150.000.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: