Fréttir
Jazzakademían 6. nóvember
Jazzakademían, jazzklúbbur Háskóla Íslands, heldur áfram og næstu tónleikar verða haldnir fimmtudaginn 6. nóvember kl. 16 – 18.
Fimmtudagur 6. nóvember, 2008 kl 16:00 – 18:00: Tríó Björns Thoroddsen & Andrea Gylfadóttir
Björn Thoroddsen gítar
Andrea Gylfadóttir söngur
Jón Rafnsson bassi
Jóhann Hjörleifsson trommur
Tónleikarnir eru í boði Háskóla Íslands og Félagsstofnunar stúdenta og fara fram á Háskólatorginu. Aðgangur er ókeypis og Hámubarinn verður opinn á meðan á þeim stendur.
Mætið og njótið!

