Fréttir
Framkvæmdir hafnar við byggingu nýrra stúdentagarða
Í gær, þriðjudaginn 6. janúar kl. 16, hófust framkvæmdir við byggingu nýrra stúdentagarða Félagsstofnunar stúdenta þegar Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, tók fyrstu skóflustungu að görðunum.
Hinir nýju stúdentagarðar munu rísa við Skógarveg 18 – 22 í Reykjavík. Húsin, sem eru þrjú talsins, verða fjögurra hæða hvert og í þeim verða samtals 80 íbúðir. Þar af verða 34 tveggja herbergja (60 m2) og 46 þriggja herbergja (72 m2) fjölskylduíbúðir fyrir um 160 – 200 íbúa. Íbúðirnar verða teknar í notkun í desember 2009.
Um byggingu húsanna sér Sveinbjörn Sigurðsson ehf. en arkitektar eru Hornsteinar ehf. Í hönnun húsanna var leitast við að brjóta upp hið hefðbundna form og fyrirkomulag stúdentaíbúða. Felur hún í sér gagngera uppstokkun á fyrirkomulagi svalagangsíbúða en í stað hefðbundins svalagangs á úthlið er myndað opið rými í miðju og íbúðum er síðan raðað í kring. Þar af leiðandi hafa allar íbúðirnar mikinn útveggjaflöt sem gefur gott aðgegni að birtu og fersku lofti. Staðsetningin skapar tækifæri til að móta einstakt samfélag stúdenta á einu eftirsóknarverðasta svæði borgarinnar sem er nú þegar gróið, enda í nágrenni við skógræktarsvæðið í hjarta Fossvogsdals, og tengist vel samgönguneti borgarinnar.
Leigueiningar á Stúdentagörðum FS eru í dag 730 talsins og hýsa þær um 1.200 manns, þ.e. stúdenta við Háskóla Íslands og fjölskyldur þeirra. Stúdentagarðarnir eru allir á háskólalóðinni nema Skuggagarðar, sem eru í miðborg Reykjavíkur. Eru Skuggagarðar síðustu garðarnir sem FS tók í notkun, haustið 2006. Síðan þá hefur FS beðið eftir úthlutun á byggingalandi svo halda megi áfram framkvæmdum, því biðlistar lengjast með ári hverju. S.l. haust voru enn um 1.000 manns eftir á biðlista. Búast má við að listarnir muni lengjast á næstunni, nú þegar stúdentum við HÍ fjölgar ört, en áætlað er að þeir verði um 13.300 talsins nú á vormisseri.
Stefna FS er að halda uppbyggingu stúdentagarða áfram þar til allir stúdentar sem kjósa að búa á görðum eiga þess kost. Talið er að FS þurfi að eiga húsnæði fyrir um 15% stúdenta við HÍ eða um 2.000 íbúðir til að uppfylla þarfir næstu ára, en í dag getur FS boðið 6.6% stúdenta húsnæði. FS bíður nú eftir úthlutun frekara byggingasvæðis en fjármögnun framkvæmda er fyrir hendi. Ljóst er að mikil eftirspurn er eftir húsnæði sem byggt er með greiðslugetu stúdenta í huga og því brýnt að stúdentum verði úthlutað meira byggingarland sem fyrst á hentugum stað í borginni.
Nýju stúdentagarðarnir verða fjármagnaðar með lánum frá Íbúðalánasjóði, sem lánar 90% af byggingarkostnaði en það sem á vantar leggur FS til.

