Fréttir
Verkefnastyrkur FS í febrúar 2009
Frestur til að sækja um verkefnastyrk FS vegna útskriftar í febrúar 2009 rennur út föstudaginn 13. febrúar n.k. Einn styrkur verður veittur að þessu sinni fyrir BA, B.Ed eða BS verkefni. Verður honum úthlutað 27. febrúar. Styrkurinn nemur kr. 150.000.
Tvenns konar BA, B.Ed og BS verkefni eru styrkhæf. Annars vegar lokaverkefni og hins vegar verkefni sem unnin hafa verið á námsferlinum í greinum þar sem nemar vinna ekki eiginlega lokaverkefni og verkefni veiti sex einingar eða meira samkv. gamla einingakerfinu en 12 samkv. því nýja. Skilyrði er að umsækjandi útskrifist í febrúar 2009.
Meistara- og doktorsnemar sem útskrifast á þessu skólaári, þ.e. á tímabilinu eftir útskrift í júní 2008 til og með útskrift í júní 2009, geta sótt um í júní 2009. Styrkurinn nemur kr. 150.000.
Smellið á "styrkir" hér efst á síðunni til að fá nánari upplýsingar um styrkinn.

