Fréttir
Síðasti Jazz 12. mars
Síðustu tónleikar Jazzakademíunnar, jazzklúbbs Háskóla Íslands, á þessu skólaári fara fram á Háskólatorgi fimmtudaginn 12. mars kl. 16 – 18. Tónleikarnir eru í boði Háskóla Íslands og Félagsstofnunar stúdenta. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill og Hámubarinn er opinn á meðan á þeim stendur.
Fram koma Sigurður Flosason á saxófón, Egill Benedikt Hreinsson á píanó, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Erik Qvick á trommum. Fluttar verða útsetningar Egils á íslenskum þjóðlögum/sönglögum og frumsömdu efni.

