Fréttir

Ókeypis skráning atvinnuauglýsinga hjá Stúdentamiðlun

27.3.2009

Félagsstofnun stúdenta rekur Stúdentamiðlun sem hefur það markmið að auðvelda stúdentum við Háskóla Íslands leit að störfum, einkum sumarstörf, og að auðvelda atvinnurekendum að finna fólk í störf. Miðlunin er að mestu gagnvirk þ.e. milliliðalaus og fer fram á vefnum www.studentamidlun.is en þar geta sem námsmenn skráð sig og atvinnurekendur auglýsa störf.

Til að hvetja atvinnurekendur til að ráða stúdenta í sumarstörf hefur verið ákveðið að bjóða ókeypis skráningar á atvinnuauglýsingum á vefinn, en alla jafna er greitt fyrir auglýsingarnar. Þeim sem hafa áhuga á að auglýsa ókeypis í 10 daga er bent á að senda upplýsingar um starfið, vinnutíma, starfstímabil, nafn á tengilið, síma og netfang á rebekka@fs.is.

Þeir sem óska einnig eftir að fá aðgangi að upplýsingum um stúdenta sem eru á skrá hjá miðluninni þurfa sem fyrr að kaupa aðgang og geta þeir þá valið að auglýsa einnig í 10 eða 30 daga.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: