Fréttir
Umsóknafrestur um Verkefnastyrk FS vegna útskriftar í júní n.k.
Frestur til að sækja um verkefnastyrk FS vegna útskriftar í júní 2009 rennur út föstudaginn 29. maí n.k. Fjórir styrkir verða veittir að þessu sinni, tveir fyrir BA, B.Ed eða BS verkefni og tveir fyrir meistara- og doktorsverkefni. Verður styrkjunum úthlutað 12. júní. Hver styrkur nemur kr. 150.000.
Tvenns konar BA, B.Ed og BS verkefni eru styrkhæf. Annars vegar lokaverkefni og hins vegar verkefni sem unnin hafa verið á námsferlinum í greinum þar sem nemar vinna ekki eiginlega lokaverkefni og verkefni veiti sex einingar eða meira samkv. gamla einingakerfinu en 12 samkv. því nýja. Skilyrði er að umsækjandi útskrifist í júní 2009.
Meistara- og doktorsnemar sem hafa útskrifast á þessu skólaári, þ.e. á tímabilinu eftir útskrift í júní 2008 til og með útskrift í júní 2009, geta sótt um nú.
Hver styrkur nemur kr. 150.000

