Fréttir

Nýir stúdentagarðar teknir í notkun næsta vetur

4.6.2009

Á komandi skólaári verða nýir Stúdentagarðar teknir í notkun við Skógarveg 18 - 22 í Reykjavík. Skógarvegur er í Fossvogi, vestanmegin við Borgarspítalann. Hverfið er skjólsælt og gróið og stutt er í verslun og þjónustu. Strætisvagnar stoppa skammt frá og hjólreiðastígur liggur úr hverfinu, framhjá Öskjuhlíð og Nauthólsvík og meðfram sjónum alla leið á háskólalóðina. Í húsunum, sem eru þrjú talsins, verða samtals 80 íbúðir. Þar af verða 34 tveggja herbergja (60 m2) og 46 þriggja herbergja (72 m2) fjölskylduíbúðir. Íbúðirnar verða teknar í notkun í desember 2009 og í janúar 2010.

Til að sækja um íbúð við Skógarveg skal sótt um tveggja eða þriggja herbergja fjölskylduíbúð og verður leiguverð sambærilegt öðru fjölskylduhúsnæði á görðum. Myndir og teikningar af íbúðunum verða settar á vefinn fljótlega.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: