Fréttir
Úthlutun Verkefnastyrkja vegna grunnnáms
Stjórn Félagsstofnunar stúdenta hefur úthlutað styrkjum til þeirra sem eru að ljúka BA, BS, B.Ed, embættis- eða kandídatsprófi.
Þá hljóta að þessu sinni Kristrún Guðmundsdóttir og Ragnheiður Erla Eiríksdóttir fyrir verkefni í hjúkrunarfræði „Mótorhjólaslys á Íslandi á árunum 2003 til 2007“ og Gestur Páll Reynisson fyrir verkefni í stjórnmálafræði „Aðstoðarmenn ráðherra – bakgrunnur, hlutverk og frami“.
Styrkjum til framhaldsnema verður úthlutað fljótlega en póstur verður sendur til allra umsækjenda þegar úthlutun er lokið.

