Fréttir
Úthlutun Verkefnastyrkja FS lokið
Stjórn Félagsstofnunar stúdenta hefur úthlutað styrkjum vegna útskriftar í júní 2009.
Styrkina hljóta:
Kristrún Guðmundsdóttir og Ragnheiður Erla Eiríksdóttir fyrir BS verkefni í hjúkrunarfræði „Mótorhjólaslys á Íslandi á árunum 2003 til 2007“.
Gestur Páll Reynisson fyrir BA verkefni í stjórnmálafræði „Aðstoðarmenn ráðherra – bakgrunnur, hlutverk og frami“.
Anna Hinriksdóttir fyrir meistaraverkefni í hagnýtri menningarmiðlun „Ástin á tímum ömmu og afa. Bréf og dagbækur aldamótamanns.“
Sigríður Klara Böðvarsdóttir fyrir doktorsverkefni í líf- og læknavísindum „Litningaóstöðugleiki og gallar í litningaendum í brjóstaæxlum“.
Verkefnastyrk FS verður úthlutað næst í október 2009.

