Fréttir

Verkefnastyrkur FS í október 2009

2.10.2009

Frestur til að sækja um verkefnastyrk FS vegna útskriftar í október 2009 rennur út mánudaginn 12. október n.k. Einn styrkur verður veittur að þessu sinni fyrir BA, B.Ed eða BS verkefni og nemur hann kr. 150.000. Tvenns konar BA, B.Ed og BS verkefni eru styrkhæf. Annars vegar lokaverkefni og hins vegar verkefni sem unnin hafa verið á námsferlinum í greinum þar sem nemar vinna ekki eiginlega lokaverkefni og verkefni veiti sex einingar eða meira samkv. gamla einingakerfinu en 12 samkv. því nýja. Skilyrði er að umsækjandi útskrifist í október 2009.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: