Fréttir

Tilboð í Þjóðleikhúsið, 1.500 kr. miðinn, aðeins í Bóksölu stúdenta!

3.11.2009

Þjóðleikhúsið og Bóksala stúdenta hafa tekið höndum saman og bjóða nú stúdentum og starfsfólki H.Í. einstakt miðaverð á valdar sýningar í viku hverri. Miðarnir verða eingöngu seldir í Bóksölu stúdenta og kosta aðeins kr. 1.500 stk.

Um er að ræða 5 - 30 miða á hverja sýningu svo það er um að gera að fylgjast vel með. Á hverjum mánudegi verður auglýst við inngang Bóksölu stúdenta og á heimasíðu FS hvaða sýningar og hve margir miðar eru í boði þá vikuna. Hver og einn getur keypt að hámarki fjóra miða. Þegar greitt er fyrir miðana í Bóksölunni fáið þið kvittun sem afhenda þarf í miðasölu Þjóðleikhússins til að fá útprentaða miða. Þá fyrst ræðst hvar þið sitjið í salnum þannig að því fyrr sem þið sækið miðana, því betri sæti fáið þið.

Við vonum að sem flestir geti nýtt sér þetta glæsilega tilboð og notið þess sem í boði verður í Þjóðleikhúsinu í vetur, af nógu að taka. Fylgist vel með framboði á miðum í Bóksölunni og á heimasíðunni www.fs.is í byrjun hverrar viku og munið, fyrstur kemur fyrstur fær!

Miðar á eftirtaldar sýningar er í boði vikuna 2. – 8. nóvember:

Brennuvargarnir Fimmtudagur 5. nóv. kl. 20, 12 miðar

Föstudagur 6. nóv. kl. 20, 6 miðar

Frida ... viva la vida Laugardagur 7. nóv. kl. 20, 14 miðar

Utan gátta Laugardagur 7. nóv. kl 17, 12 miðar

Laugardagur 7. nóv. kl. 20, 25 miðar

Völva Fimmtudagur 5. nóv. kl. 20, 25 miðar

Föstudagur 6. nóv. kl. 20, 17 miðar

Sindri silfurfiskur Laugardagur 7. nóv. kl. 13:30, 6 miðar (ath. aðeins 1.000 kr.)

Laugardagur 7. nóv. kl. 15:00, 6 miðar (ath. aðeins 1.000 kr.)



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: