Fréttir
Búkolla á Háskólatorgi
Í tilefni af fjölskyldudögum SHÍ bjóða Þjóðleikhúsið og FS börnum stúdenta og starfsfólks HÍ í sögustund um ævintýrið um Búkollu á sviðinu á Háskólatorgi, fimmtudaginn 12. nóvember kl. 16.30. Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leikkona spinnur og leikur hið gamla ævintýri fyrir börnin undir leikstjórn Friðriks Friðrikssonar. Sögustundin, sem er 20 – 30 mínútur, er ætluð börnum í eldri deildum leikskóla og yngri bekkjum grunnskóla. Að henni lokinni býður Háma börnunum uppá viðeigandi veitingar. Aðgangur er ókeypis og eru stúdentar hvattir til bjóða börnum sínum með í skólann á fimmtudaginn.

