Fréttir

Glænýjar og rúmgóðar fjölskylduíbúðir á Stúdentagörðum.

13.11.2009

Fyrstu íbúðirnar á nýjum Stúdentagörðum, Skógargörðum, verða teknir í notkun nú í desember. Skógargarðar eru í Fossvogi, nánar tiltekið við Skógarveg vestanmegin við Borgarspítalann. Hverfið er stutt frá verslun og þjónustu og umfram allt skammt frá hjólreiðastíg sem liggur alla leið á háskólalóðina. Í húsunum, sem eru þrjú talsins, eru stærri íbúðir en Stúdentagarðar hafa hingað til geta boðið stúdentum og fjölskyldum þeirra. Íbúðirnar eru samtals 80, þar af 34 tveggja herbergja (60 m2) og 46 þriggja herbergja (72 m2). Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér málið nánar en frekari upplýsingar, myndir og teikningar má finna á vefnum www.studentagardar.is en þar er einnig sótt um.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: