Fréttir
Háma og Kaffistofur stúdenta yfir jól og áramót
Kaffistofur stúdenta verða lokaðar yfir jól og áramót, frá og með mánudeginum 21. desember til og með 6. janúar. Þær opna aftur fimmtudaginn 7. janúar.
Háma verður opin 21., 22. og 23. desember kl. 8 - 16. Lokað verður á aðfangadag, jóladag og 2. í jólum. Opið verður 28., 29. og 30 desember kl. 8 - 16. Lokað 31. desember til 3. janúar. Opnum aftur 4. janúar og verður þá opið kl. 8 - 17.

