Fréttir

Enn fleiri glænýjar fjölskylduíbúðir

20.1.2010

Fyrstu íbúðirnar á nýjum Stúdentagörðum, Skógargörðum, voru teknar í notkun í desember sl. Í húsunum, sem eru þrjú talsins, eru stærri íbúðir en Stúdentagarðar hafa hingað til geta boðið stúdentum og fjölskyldum þeirra. Íbúðirnar eru samtals 80, 34 tveggja herbergja (60 m2) og 46 þriggja herbergja (72 m2).

Nú í febrúar verður síðasta húsið tilbúið til útleigu, fyrri hlutinn um miðjan mánuðinn og seinnihlutinn í lok mánaðar. Um er að ræða bæði 2ja og 3ja herbergja fjölskylduíbúðir.

Skógargarðar eru við Skógarveg í Fossvogi, vestanmegin við Borgarspítalann. Hverfið er stutt frá verslun og þjónustu og skammt frá hjólreiðastíg sem liggur alla leið á háskólalóðina.

Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér málið nánar og sækja um, en frekari upplýsingar, myndir og teikningar má finna á vefnum www.stúdentanagarðar.is.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: