Fréttir
Tilboð í Þjóðleikhúsið heldur áfram, 1.500 kr. miðinn, 2.200 á söngleiki, aðeins í Bóksölu stúdenta!
Þjóðleikhúsið og Bóksala stúdenta hafa í vetur boðið stúdentum og starfsfólki H.Í. einstakt miðaverð á valdar sýningar í viku hverri. Miðarnir eru eingöngu seldir í Bóksölu stúdenta og kosta aðeins kr. 1.500 stk. en kr. 2.200 á söngleiki.
Um er að ræða 5 - 30 miða á hverja sýningu svo það er um að gera að fylgjast vel með. Á hverjum mánudegi er auglýst við inngang Bóksölu stúdenta og á heimasíðu FS hvaða sýningar og hve margir miðar eru í boði þá vikuna. Hver og einn getur keypt að hámarki fjóra miða í einu. Þegar greitt er fyrir miðana í Bóksölunni fáið þið kvittun sem afhenda þarf í miðasölu Þjóðleikhússins til að fá útprentaða miða. Þá fyrst ræðst hvar þið sitjið í salnum þannig að því fyrr sem þið sækið miðana, því betri sæti fáið þið.
Við vonum að sem flestir geti nýtt sér þetta glæsilega tilboð og notið þess sem í boði er í Þjóðleikhúsinu. Fylgist vel með framboði á miðum í Bóksölunni og á heimasíðunni www.fs.is í byrjun hverrar viku og munið, fyrstur kemur fyrstur fær!
Tilboð vikunnar 22. - 28. febrúar:
Brennuvargarnir mið. 24/2 kl. 20:00 4 miðar á 1.500 kr.
Gerpla fim. 25/2 kl. 20:00 4 miðar á 1.500 kr.
Gerpla fös. 26/2 kl. 20:00 6 miðar á 1.500 kr.
Gerpla lau. 27/2 kl. 20:00 4 miðar á 1.500 kr.
Oliver! sun. 28/2 kl. 15:00 6 miðar á 2.200 kr.
Oliver! sun. 28/2 kl. 19:00 8 miðar á 2.200 kr.

