Fréttir

Samþykkt að byggja allt að 300 stúdentaíbúðir á Háskólalóðinni

10.6.2011

Borgarráð samþykkti á fundi sínum fimmtudaginn 9. júní auglýstar tillögur að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur og deiliskipulags Háskóla Íslands vegna Vísindagarða á háskólasvæðinu. Í tillögunum er gert ráð fyrir að á svæðinu rísi lágreist en þétt borgarbyggð með stúdentaíbúðum, starfsemi Háskóla Íslands og Vísindagörðum. Lóðin sem um er að ræða afmarkast af Eggertsgötu, Oddagötu og Sturlugötu.

Tillagan að deiliskipulagi fyrir stúdenta og vísindagarða felur í sér mikilvæg markmið góðrar borgarþróunar. Byggðin sem rís verður þétt en lágreist með góðum almenningsrýmum, torgi og innigörðum. Þessi byggð styttir vegalengdir fyrir stúdenta og því verður þörf fyrir bílaumferð og bílastæði í lágmarki. Byggðin býr því yfir mikilvægum vistvænum kostum auk þess sem hún gerir þekkingarfyrirtækjum kleift að koma sé fyrir á háskólasvæðinu. Með þessu skipulagi er stigið skref til að gera Reykjavík vistvænni og efla hana sem þekkingarborg.

Í hinum samþykktu skipulagsáætlunum er að finna ótímabundnar heimildir til u.þ.b. 74.000 m2 uppbyggingar á svæðinu. Byggðin verður tvær og hálf til fjórar hæðir, þar sem að fjórða hæðin er inndregin, með þéttu og borgarmiðuðu gatnakerfi. Gert er ráð fyrir allt að 300 stúdentaíbúðum í görðum Félagsstofnunar stúdenta á svæðinu meðfram Oddagötu.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: