Fréttir

Tíu styrkir fyrir stúdenta sem útskrifast árið 2012

31.10.2011

Þann 1. desember n.k. mun Félagsstofnun stúdenta veita tíu stúdentum við HÍ styrki til að vinna að lokaverkefnum.

Fimm styrkir verða veittir stúdentum í grunnnámi, einum á hverju fræðasviði, og fimm styrkir stúdentum í meistaranámi óháð fræðasviði.

Umsóknafrestur um styrkina rennur út fimmtudaginn 3. nóvember kl. 16.

Umsóknum skal skilað til Rebekku Sigurðardóttur á skrifstofu FS á Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, 101 R. Hver styrkur er í formi 150 þúsund króna inneignar í Bóksölu stúdenta.

Nánari upplýsingar má finna hér síðunni undir "styrkir".



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: