FS

Study_break
Study_break

Hvað er Félagsstofnun stúdenta?

Félagsstofnun stúdenta var stofnuð með lögum nr. 33, 1968 og tók formlega til starfa 1. júní sama ár. Aðild að stofnuninni eiga allir skrásettir stúdentar við Háskóla Íslands, Háskólinn og menntamálaráðuneytið. Í stjórn FS eiga sæti fimm fulltrúar. Þrír fulltrúar eru tilnefndir af Stúdentaráði HÍ, einn af HÍ og einn af menntamálaráðuneytinu. Fulltrúar Stúdentaráðs í stjórninni nú eru Davíð Gunnarsson, stjórnarformaður, Haukur Agnarsson og Sigurður Örn Hilmarsson. Fulltrúi Háskólans er Baldur Þórhallsson og fulltrúi menntamálaráðuneytis er Atli Atlason. Fundi stjórnar FS sitja einnig framkvæmdastjóri FS, formaður SHÍ og áheyrnarfulltrúar starfsmanna FS, Vöku, Röskvu og Háskólalistans

Félagsstofnun stúdenta er sjálfseignarstofnun með sjálfstæðri fjárhagsábyrgð. Starfsmenn eru um 120 talsins.

Nú árið 2011, rekur FS: Bóksölu stúdenta, Kaffistofur stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagarða, Stúdentamiðlun og Hámu.

Aðalskrifstofa FS er á 3. hæð í Háskólatorginu við Sæmundargötu en húsið stendur á milli Aðalbyggingar HÍ og Íþróttahúss. Hún er opin virka daga kl. 9 - 16. Sími 5 700 700, fax 5 700 709, netfang fs@fs.is Kennitala FS er 540169-6249,



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: