Starfsmannastefna

Virk og lifandi

Markmið FS er

  • að hafa á að skipa starfsfólki með góða þekkingu á starfssviði sínu.
  • að hvetja starfsfólk til frumkvæðis og veita því svigrúm til að efla og bæta þjónustu við viðskiptavini.
  • að stuðla að jafnvægi starfs og einkalífs og stuðla að starfsánægju og góðum starfsanda.

 

Starfsumhverfi

FS leggur áherslu á gott starfsumhverfi, góðan starfsanda og vellíðan starfsmanna.

Starfsfólki er sýnt traust, tillitsemi og hreinskilni. Starfsmenn sýna gagnkvæma virðingu í öllum sínum samskiptum. Lögð er áhersla á að starfsfólk hafi greiðar leiðir til að koma skoðunum sínum og viðhorfum á framfæri við stjórnendur.

 

Stjórnun og upplýsingastreymi

FS leggur áherslu á góða og nútímalega stjórnunarhætti, sem m.a. felast í jákvæðu viðhorfi til samstarfsmanna og virku upplýsingastreymi, í formi markvissra upplýsingagjafa t.d. fundum og tölvupósti. Ákvörðunarvald og ábyrgð stjórnenda gagnvart starfsmönnum eru vel skilgreind og starfsfólki ljós.

 

Starfsþróun

FS veitir starfsmönnum tækifæri til að þroskast í starfi og auka þekkingu sína.

Stjórnendur og starfsmenn bera sameiginlega ábyrgð á viðhaldi menntunar og þekkingu starfsmanna. Starfsfólk er hvatt til að þróast og vaxa í starfi og eru starfsmannasamtöl vettvangur til að leggja drög að frekari þjálfun. Lögð er  áhersla á að hjá stofnuninni starfi hæft starfsfólk með faglega þekkingu.

 

Jafnvægi vinnu og einkalífs

Leitast er við eftir fremsta megni að koma til móts við starfsmenn varðandi sveigjanleika í starfi þar sem þarfir einkalífs og starfs fara saman.

FS hvetur til ávallt til þáttöku maka í félagslífi starfsmanna. Ef það á við er einnig hvatt til þáttöku barna.

 

Jafnræði meðal starfsfólks

Jafnræðis er gætt milli starfsmanna. Starfsfólki eru greidd sanngjörn laun fyrir störf sín. Einelti og kynferðisleg áreitni er ekki liðin innan stofnunarinnar. Nánar má lesa um jafnrétti í jafnréttisstefnu FS.

 

Móttaka nýliða

Tekið er vel á móti nýjum starfsmönnum og þeim veittur stuðningur og þjálfun til þess að takast á við starfið.  Lögð er áhersla á að starfsmaðurinn geri sér grein fyrir starfi sínu og markmiði stofnunarinnar.  Nýir starfsmenn fá í hendur hagnýtar upplýsingar og kynningu á stofnuninni.

 

Öryggi og heilsuvernd

FS leitast við að tryggja öryggi starfsfólks á vinnustað. Vinnuumhverfið fullnægir kröfum um vinnuvernd.

 



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: