Háskólatorg
Hjarta Háskóla Íslands
Háskólatorgið er staðsett miðsvæðis á háskólalóðinni, á milli Aðalbyggingar og íþróttahúss HÍ, en aðkoma að húsinu er einnig frá Suðurgötu. Háskólatorgið er samkomustaður stúdenta og starfsfólks HÍ og í húsinu er að finna helstu þjónustueiningar FS og Háskóla Íslands auk kennslu- og fyrirlestrarsala. Á torginu er svið sem nýtist fyrir tónleika og aðrar uppákomur.
Starfsemi FS í Háskólatorgi: Skrifstofur FS eru á 3. hæð í og Bóksala stúdenta og veitingasalan og barinn Háma eru á 2. hæð. Á 2. hæð er einnig Þjónustuborð þar sem m.a. er hægt að nálgast upplýsingar um starfsemi FS. Háskólatorgið er staðsett miðsvæðis á háskólalóðinni, það er inningengt á torgið úr nokkrum byggingum og stutt úr öðrum og þangað sækir fjöldi stúdenta daglega hittast og nærast.

