Styrkir

Gríptu tækifærið!

Verkefnastyrkur FS

Verkefnastyrkir FS verða næst veittir í júní 2010. Markmiðið með styrkjunum er að hvetja stúdenta til markvissari undirbúnings og metnaðarfyllri lokaverkefna. Jafnframt að koma á framfæri og kynna frambærileg verkefni.

Fjórir munu hljóta styrki vegna BS, B.Ed eða BA verkefna. Þrennskonar BS, B.Ed og BA verkefni eru styrkhæf: 1. Lokaverkefni, nemenda sem útskrifast í febrúar eða júní 2010. 2. Lokaverkefni umsækjenda sem sóttu um innan auglýsts umsóknartíma fyrir útskrift í október 2009. 3. Verkefni nemenda sem útskrifast í febrúar eða júní 2010 og eru í greinum þar sem nemar vinna ekki eiginleg lokaverkefni en hafa unnið verkefni sem veiti tólf einingar eða meira.

Tveir hljóta hljóta styrki vegna meistara- eða doktorsverkefna. Geta þeir sótt um sem útskrifast hafa á skólaárinu sem er að líða, þ.e. á tímabilinu eftir útskrift í júní 2009 til og með útskrift í júní 2010.

Hver styrkur nemur kr. 150.000.

 
Umsókn skal skilað fyrir kl. 16 þriðjudaginn 25. maí 2010. Ekki er veittur frestur til að skila umsóknum umfram þá dagsetningu.
 
Sjá nánar:

Leiðbeiningar við að útbúa umsókn

Úthlutunarreglur



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leturstærð: