Um styrkinn
Verkefnastyrkir FS verða næst veittir í júní 2010
Verkefnastyrkir FS verða næst veittir í júní 2010. Markmiðið með styrkjunum er að hvetja stúdenta til markvissari undirbúnings og metnaðarfyllri lokaverkefna. Jafnframt að koma á framfæri og kynna frambærileg verkefni.
Fjórir kandidatar munu hljóta styrki vegna BS, B.Ed eða BA verkefna. Þrennskonar BS, B.Ed og BA verkefni eru styrkhæf:
1. Lokaverkefni, nemenda sem útskrifast í febrúar, júní eða október 2010.
2. Lokaverkefni umsækjenda sem sóttu um innan auglýsts umsóknartíma fyrir útskrift í október 2009.
3. Verkefni nemenda sem útskrifast í febrúar, júní eða október 2010 og eru í greinum þar sem nemar vinna ekki eiginleg lokaverkefni en hafa unnið verkefni sem veiti tólf einingar eða meira.
Tveir hljóta hljóta styrki vegna meistara- eða doktorsverkefna. Geta þeir sótt um sem útskrifast hafa á skólaárinu sem er að líða, þ.e. á tímabilinu eftir útskrift í júní 2009 til og með útskrift í október 2010.
Hver styrkur nemur kr. 150.000.

