Úthlutunarreglur
Samþykkt um Verkefnastyrk Félagsstofnunar stúdenta (FS)
I. Nafn, markmið og ákvörðunarvald:
1. gr.
Styrkurinn nefnist „Verkefnastyrkur Félagsstofnunar stúdenta”.
2. gr.
Markmiðið með styrknum er að hvetja stúdenta til markvissari undirbúnings og metnaðarfyllri lokaverkefna. Jafnframt að koma á framfæri og kynna frambærileg verkefni.
3. gr.
Stjórn FS á hverjum tíma fer með ákvörðunarvald um öll málefni varðandi styrkinn og úthlutar honum.
II. Úthlutunarreglur:
4. gr.
Fjórir styrkir eru árlega veittir stúdentum sem eru að ljúka BS, BA, B.Ed, embættisprófi eða kandídatsprófi við Háskóla Íslands. Tveir vegna brautskráningar að sumri, einn vegna brautskráningar að hausti og einn vegna brautskráningar í febrúar. Upphæð hvers styrks er 150.000 krónur.
Tveir styrkir eru árlega veittir vegna meistara – eða doktorsverkefna við Háskóla Íslands. Skulu styrkirnir veittir á hverju sumri vegna brautskráningar á liðnu skólaári. Upphæð hvors styrks er 150.000 krónur.
Ef tveir eða fleiri nemendur vinna verkefni saman skulu þeir sækja um saman og deila þá með sér styrknum. Ef nemendurnir útskrifast ekki á sama tíma skal sótt um við útskrift þess síðasta.
5. gr.
Tvennskonar BS-, BA-, B.Ed-, kandídats- og embættisprófsverkefni eru styrkhæf:
1. Lokaverkefni, enda útskrifist nemandi innan þriggja mánaða.
2. Verkefni í greinum þar sem nemar vinna ekki eiginleg lokaverkefni og verkefnið veiti 12 einingar eða meira.
6. gr.
Meistara- og doktorsverkefni þeirra sem útskrifast hafa á liðnu skólaári eru styrkhæf enda hafi umsækjandi útskrifast á skólaárinu sem er að líða, þ.e. á tímabilinu eftir útskrift í júní á síðasta ári til og með útskrift í júní n.k.
7. gr.
Senda skal tölvupóst frá FS til allra þeirra sem skráðir eru til útskriftar hjá nemendaskrá HÍ og þeim kynntur styrkurinn. Jafnframt skal auglýsa styrkinn á heimasíðu FS og í útgefnu efni á vegum FS.
8. gr.
Þegar gengið er frá umsókn skulu leiðbeiningar um frágang umsóknar um Verkefnastyrk FS hafðar til hliðsjónar. Leiðbeiningar skulu fylgja með tölvupósti sem útskriftarnemum er sendur og koma fram á heimasíðu FS. Umsóknir skulu vera nafnlausar og hafa að geyma lýsingu á verkefni, námsferilsyfirlit og umsögn frá leiðbeinanda um verkefnið. Uppýsingar um nafn umsækjanda skal afmá af öllum framangreindum gögnum. Með umsókn skal fylgja lokað umslag með upplýsingum um nafn, heimilisfang, síma og netfang umsækjanda og frumrit frá nemendaskrá og leiðbeinanda.
9. gr.
Umsóknir skulu hafa borist á skrifstofu FS eigi síðar en 14 dögum fyrir úthlutun. Úthlutun styrkjanna skal á hverju ári vera lokið 1. júlí vegna brautskráningar að sumri, 1. nóvember vegna brautskráningar að hausti og 1. mars vegna brautskráningar í febrúar.
10. gr.
Að úthlutun lokinni skal senda öllum umsækjendum tölvupóst sem tilgreinir niðurstöður úthlutunar. Úthlutun stjórnar er endanleg.
11. gr.
Samþykkt þessi tekur gildi frá og með 16. júní 2009 og verður styrkurinn veittur í fyrsta sinn eftir þessa samþykkt í júní 2009.
Samþykkt á stjórnarfundi 16. júní 2009.
Stjórn Félagsstofnunar stúdenta:
Davíð Gunnarsson, formaður
Haukur Agnarsson
Sigurður Örn Hilmarsson
Baldur Þórhallsson
Atli Atlason

