Leikskólar
Stúdentabörn eru í góđum höndum
Félagsstofnun stúdenta rekur ţrjá leikskóla. Leikskólafulltrúi hefur umsjón međ faglegu starfi og rekstri skólanna. Leikskólafulltrúi FS er Sigríđur Stephensen, sigridur@fs.is, og er hún til viđtals á skrifstofum FS í Háskólatorgi virka daga kl. 10 -14, s. 5 700 888.
Sólgarđur, Eggertsgötu 8, er ţriggja deilda, fyrir börn á aldrinum sex mánađa til tveggja ára. Hann er stađsettur á stúdentagarđinum Vetrargarđi og ţar er rými fyrir 51 barn í heilsdagsvistun. Sótt er um vistun á Sólgarđi á síđunni http://www.leikskolinn.is/solgardur. Skólinn er eingöngu fyrir börn stúdenta viđ HÍ.
Leikskólastjóri á Sólgarđi er Sólveig Gunnarsdóttir. Síminn er 590 4900 og netfang solgardur@fs.is. Fréttir af daglegu starfi skólans má finna á síđunni http://www.leikskolinn.is/solgardur
Mánagarđur, Eggertsgötu 34, er fjögurra deilda, fyrir börn á aldrinum tveggja til sex ára. Hann er stađsettur í Ásgarđahverfinu og eru ţar 68 heilsdagsrými.
Leikskólastjóri á Mánagarđi er Soffía Emelía Bragadóttir. Síminn er 562 3340, netfang managardur@fs.is . Fréttir af daglegu starfi skólans má finna á síđunni http://www.leikskolinn.is/managardur en ţar er einnig sótt um vistun.
Leikgarđur, Eggertsgötu 14, er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 6 mánađa til tveggja ára. Hann er stađsettur í Ásgarđahverfinu og ţar eru 56 heilsdagsrými. Sótt er um vistun á síđunni http://www.leikskolinn.is/leikgardur. Skólinn er eingöngu fyrir börn stúdenta viđ HÍ.
Leikskólastjóri á Leikgarđi er Guđlaug Gunnarsdóttir.
Fréttir af daglegu starfi skólans má finna á síđunni http://www.leikskolinn.is/leikgardur
Umsókn um forgang
Ef sérstakar ađstćđur liggja fyrir er hćgt ađ sćkja um forgang ađ leikskólunum. Umsókn um forgang á Mánagarđ fer fram í gegnum ţjónustumiđstöđ Vesturbćjar en umsókn um forgang á Leikgarđi og Sólgarđi fer fram á eftirfarandi hátt:
1. Umsókn skal skilađ til viđkomandi leikskólastjóra. Međ umsókn skulu fylgja gögnum sem styđja forgang ţ.e. lćknisvottorđ, vottorđ frá félagsráđgjafa og/eđa greiningarstöđ.
2. Leikskólastjóri mćlir međ forgangi viđ úrskurđarnefnd sem skođar hvert tilvik fyrir sig. Úrskurđarnefnd er skipuđ fulltrúa námsráđgjafar HÍ, fulltrúa Stúdentaráđs HÍ og fulltrúa Leikskóla stúdenta.
3. Leikskólastjóri tilkynnir foreldrum ákvörđun nefndarinnar og er niđurstađa nefndarinnar endanleg.

