Hvað er Félagsstofnun Stúdenta?

Félagsstofnun stúdenta er sjálfseignarstofnun með sjálfstæðri fjárhagsábyrgð. FS var stofnuð með lögum nr. 33, 1968 og tók formlega til starfa 1. júní sama ár. Aðild að stofnuninni eiga allir skrásettir stúdentar við Háskóla Íslands, Háskólinn og menntamálaráðuneytið.

FS er fyrst og fremst þjónustufyrirtæki fyrir stúdenta við Háskóla Íslands og er aðalmarkmið að bjóða stúdentum við HÍ góða þjónustu á góðum kjörum og auka lífsgæði stúdenta. Gildi FS eru: Góð þjónusta – Virk samvinna – Jákvæð upplifun – Markviss árangur.

Í stjórn FS eiga sæti fimm fulltrúar. Þrír fulltrúar eru tilnefndir af Stúdentaráði HÍ, einn af HÍ og einn af menntamálaráðuneytinu. Fulltrúar Stúdentaráðs í stjórninni nú eru Elísabet Brynjarsdóttir, stjórnarformaður, Brynhildur Bolladóttir og Pétur Urbancic Tómasson. Fulltrúi Háskólans er Baldur Þórhallsson og fulltrúi menntamálaráðuneytis er Atli Atlason. Fundi stjórnar FS sitja einnig framkvæmdastjóri FS, formaður SHÍ og áheyrnarfulltrúi starfsmanna FS. Starfsmenn eru nú um 150 talsins.

Í dag rekur FS: Bóksölu stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagarða, Stúdentakjallarann, Hámu, Hámu Salatbar, Bókakaffi stúdenta og Kaupfélag stúdenta.

Aðalskrifstofa FS er á 3. hæð í Háskólatorginu við Sæmundargötu.
Hún er opin mánudaga – fimmtudaga kl. 9 – 16 og föstudaga kl. 9 – 12.
Sími: 5 700 700
Fax: 5 700 709
Netfang: fs@fs.is
Kennitala FS er 540169-6249.

Hafa samband

Þú getur haft samband við okkur í síma 570-0700, sent tölvupóst á netfangið fs@fs.is eða fyllt út formið hér að neðan.

    This site is protected by reCAPTCHA and the Google
    Privacy Policy and
    Terms of Service apply.

    FS í hnotskurn

    Aðalmarkmið FS er að bjóða stúdentum við HÍ góða þjónustu á góðum kjörum og auka lífsgæði stúdenta.


    Gildi FS eru:
    Góð þjónusta, virk samvinna, jákvæð upplifun og markviss árangur.

    Bóksala stúdenta útvegar háskólastúdentum námsefni og önnur aðföng til náms.

    Leikskólar stúdenta bjóða leikskólarými fyrir börn stúdenta og starfa samkv. High Scope stefnunni.

    Stúdentagarðar bjóða stúdentum við Háskóla Íslands til leigu hentugt og vel staðsett húsnæði af ýmsum stærðum og gerðum á sanngjörnu verði.

    Háma er veitingasala stúdenta á Háskólatorgi, Háskólabíói, Tæknigarði, Odda, Öskju, Eirbergi, Læknagarði, Þjóðarbókhlöðunni og í Stakkahlíð. Háma býður hollan og góðan háskólamat á lágmarksverði, heitan mat í hádeginu, súpur og fjölbreytt úrval af vörum í kælum sem framleitt er á staðnum. Háma salatbar er staðsettur á Háskólatorgi.

    Stúdentakjallarinn er kaffihús, veitinga- og skemmtistaður á Háskólatorgi. Þar hægt að fá mat og drykk frá morgni og langt fram á kvöld en þar er einnig frábær aðstaða fyrir tónleika, viðburði og annað félagslíf stúdenta.

    Bókakaffi stúdenta er kaffihús sem staðsett er í Bóksölu stúdenta á Háskólatorgi. Þar er selt gæðakaffi og meðlæti á stúdentaverði.

    Kaupfélag stúdenta er staðsett í Bóksölu stúdenta á Háskólatorgi. Þar eru seldar ýmsar gagnlegar og skemmtilegar vörur á góðu verði.

    Saga FS

    1968 - 1980

    1968  –  Félagsstofnun stúdenta tekur til starfa og tekur við rekstri Gamla Garðs og Nýja Garðs, Kaffistofu stúdenta í Aðalbyggingunni, Bóksölu stúdenta, barnaheimilisins Efri-Hlíðar og Ferðaþjónustu stúdenta.
    1971  –  Stúdentaheimilið við Hringbraut opnað. Kaffistofan í Árnagarði opnuð.
    1972  –   Matsala stúdenta hefur starfsemi. Háskólafjölritun hefur starfsemi.
    1973  –  Barnaheimilið Valhöll opnað. Kaffistofan í Lögbergi opnuð.
    1975  –  Stúdentakjallarinn tekur til starfa.
    1976  –  Hjónagarðar teknir í notkun, alls 55 íbúðir.

    1980 - 2000

    1980  –  Ferðaskrifstofa stúdenta hefur starfsemi.
    1985  –  Kaffistofan í Odda opnuð.
    1986  –  Kaffistofan í Eirbergi opnuð.
    1989  –  Vetrargarður fullbúinn, 90 íbúðir.
    1993  –  Fyrsti áfangi Ásgarða tilbúinn, 27 íbúðir.
    1994  –  Næsti áfangi Ásgarða tilbúinn, 38 íbúðir.
    1995  –  21 íbúð bætist við á Ásgörðum. Nýi Garður seldur HÍ. FS opnar leikskólann Sólgarð.
    1996  –  FS opnar leikskólann Mánagarð. 17 íbúðir bætast við á Ásgörðum. Starfsaðstoð hafin í samvinnu við Hagvang.
    1997  –  Enn einn áfangi á Ásgörðum tilbúinn, 44 íbúðir.
    1998  –  Atvinnumiðstöð stúdenta hefur starfsemi. Fyrri áfangi Skerjagarðs tekinn í notkun, 41 íbúð.
    1999  –  Seinni áfangi Skerjagarðs kemst í gagnið, 38 íbúðir. Ferðaskrifstofa stúdenta seld Samvinnuferðum-Landsýn.

    2000 - 2020

    2000  –  44 nýjar íbúðir á Ásgörðum teknar í gagnið.
    2001  –  Veitingastaðurinn Deli opnar útibú í Stúdentaheimilinu við Hringbraut.
    2001  –  Námsráðgjöf Háskóla Íslands flytur í Stúdentaheimilið við Hringbraut.
    2001  –  FS opnar nýja kaffistofu í Læknagarði.
    2001  –  Sólgarður stækkar við sig og dagvistunarrýmum fjölgar.
    2001  –  Bóksalan setur alla starfsemi sína á vefinn.
    2002  –  Efri-Hlíð verður einn af Leikskólum FS.
    2002  –  Fyrsti áfangi stóra hússins í Ásgarðahverfinu tilbúinn, 30 íbúðir.
    2002  –  Sólgarður stækkaður.
    2003  –  Síðasta húsið í Ásgarðahverfinu tilbúið, 94 íbúðir.
    2003  –  10 – 11 verslun opnuð í Ásgarðahverfinu.
    2003  –  Kaffi Náttúra opnar í Öskju.
    2005  –  Atvinnumiðstöð stúdenta og húsnæðis-, kennslu- og barnagæslumiðlun SHÍ sameinast í Stúdentamiðlun sem FS rekur.
    2005  –  Leikskólinn Efrihlíð flytur í nýtt húsnæði við Ægissíðu.
    2005  –  Byggingaframkvæmdir við Stúdentagarða við Lindargötu hefjast.
    2006  –  Leikskólinn Efrihlíð flytur í húsnæði Leikgarðs og FS tekur við rekstrinum.
    2006  –  Skuggagarðar teknir í notkun.
    2007  –  FS flytur alla starfsemi sína í Háskólatorg, opnar þar nýja Bóksölu stúdenta og nýjan veitingastað Hámu.
    2009  –  Byggingaframkvæmdir hefjast við stúdentagarða við Skógarveg.
    2009  –  Fyrstu íbúðirnar á Skógargörðum við Skógarveg teknar í notkun í desember.
    2010  –  Framkvæmdum við Skógargarða við Skógarveg lokið.
    2010 – Bóksala stúdenta opnar nýja verslun í Háskólanum í Reykjavík. 2012 – Framkvæmdir við byggingu 299 nýrra stúdentaíbúða fyrir 320 stúdenta hefjast í Vísindagarðahverfi við Vatnsmýri.
    2013 – Stúdentakjallarinn, nýr veitinga- og skemmtistaður stúdenta opnar í viðbyggingu við Háskólatorg og Háskólatorgið er stækkað.
    2013 – Bókakaffi stúdenta opnar á Háskólatorgi.
    2013 – Oddagarðar teknir í notkun. 299 leigueiningar fyrir einstaklinga og barnlaus pör.
    2013 – Kaupfélag stúdenta opnar í Bóksölu stúdenta á Háskólatorgi.
    2014 – Gamli Garður endurnýjaður.
    2014 – Háma heimshorn opnar í Tæknigarði.
    2014 – Bíó Háma opnar í Háskólabíói.
    2015 – Byggingaframkvæmdir hefjast við nýja Stúdentagarða í Brautarholti.
    2015 – Endurnýjun Hjónagarða hafin.
    2016 – Háma salatbar opnar á Háskólatorgi.
    2016 – Nýir Stúdentagarðar við Brautarholt teknir í notkun.
    2016 – Endurnýjun íbúða á Hjónagörðum lýkur.
    2017 – Kaffistofu stúdenta í Árnagarði breytt í Hámu.
    2017 – Rekstur hafinn á Student Hostel yfir sumartímann á Gamla Garði.
    2017 – Kaffistofu stúdenta í Eirbergi breytt í Hámu.
    2017 – Framkvæmdir hefjast við nýja stúdentagarða við Sæmundargötu 21.
    2018 – Kaffistofu í Læknagarði breytt í Hámu.
    2018 – Leikskólinn Mánagarður stækkaður í 128 barna leikskóla.
    2018 – Félagsstofnun stúdenta fagnar 50 ára afmæli.
    2019 – Framkvæmdir hefjast við stækkun Gamla Garðs.
    2020 – Mýrargarður, Sæmundargötu 21, tekinn í notkun. 244 leigueiningar fyrir einstaklinga og barnlaus pör.
    2020 – Kaffistofum í Odda og Öskju breytt í Hámu.
    2020 – Háma tekur við rekstri kaffiteríu í Þjóðarbókhlöðu.
    2020 – Dýragarðar, Eggertsgata 18, á Stúdentagörðum tekinn í notkun. 18 leigueiningar fyrir einstkalinga, pör og fjölskyldur.

    2021-

    2021 – Endurnýjun íbúða á Vetrargarði hefst.
    2021 – Nýbygging við Gamla Garðs tekin í notkun. 69 leigueiningar fyrir einstaklinga.
    2021 – Eggertsgata 16 tekin í notkun fyrir Dýragarða. 20 leigueiningum bætt við fyrir einstaklinga, pör og fjölskyldur.
    2021 – Samningur undirritaður um kaup Félagsstofnun stúdenta og Ríkissjóðs Íslands á Hótel Sögu.
    2022 – Breytingum á íbúðum á Skerjagarði lýkur. Uppsetning bakaraofns og eyju í eldhúsi.
    2022 – Framkvæmdir við stúdentagarða á Sögu, Hagatorgi 1, hefjast.
    2022 – Viljayfirlýsing um uppbyggingu húnæðis fyrir stúdenta undirrituð. Samþykkt lóðarvilyrði fyrir allt að 12 íbúðir við Vatnsstíg og 239 íbúðir á fjórum lóðum sem gert er ráð fyrir að verði úthlutað á árunum 2025-2028.
    2022 – Viljayfirlýsing vegna byggingarinnar Stapa við Hringbraut 31 undirrituð.
    2022 – Framkvæmdir við Lindargötu 44 hefjast.
    2022 – Stærsta haustúthlutun Stúdentagarða til þessa – 512 leigueiningum úthlutað til rúmlega 550 stúdenta.
    2022 – Stækkun leikskólans Sólgarðs við Eggertsgötu 12-14 hefst.
    2022 – Morgunbar Hámu opnar á Háskólatorgi.
    2022 – Ný heimasíða Stúdentagarða tekin í notkun.
    2022 – 15 ára afmælis Háskólatorgs fagnað.
    2022  10 ára afmælis Stúdentakjallarans fagnað.
    2023 – 55 ára afmælis Félagsstofnunar stúdenta fagnað með fjölbreyttum hætti allt árið.
    2023 – Gæludýrhald leyft á Eggertsgötu 26 og 28.
    2023 – 111 stúdíóíbúðir teknar í notkun á Sögu, Hagatorgi 1.
    2023 – Leikskólarnir Leikgarður og Sólgarður sameinaðir í einn undir nafni Sólgarðs á Eggertsgötu 12-14.
    2023 – Matarspori komið upp í Hámu á Háskólatorgi.
    2023 – Endurnýjun íbúða á Vetrargarði, Eggertsgötu 6-10 lýkur. 
    2023 – Endurnýjun íbúða á Ásgörðum hefst.
    2023 – Bygging nýs samkomusalar og þjónusthúss Umsjónar fasteigna hefst.

     

    Spurt og svarað

    Bóksala stúdenta

    Hvenær er bóksala stúdenta opin?

    Hún er opin kl. 9 – 18 virka daga, kl. 9 – 17 á sumrin en lengur í kring um próf og fyrir jól. Sjá nánar hér

    Háma

    Hvernig fæ ég upplýsingar um veitingar sem hægt er að fá á fundi og í veislur frá Hámu?

    Sendu póst á hama@fs.is

    Hvernig panta ég veitingar?

    Smelltu hér

    Með hve löngum fyrirvara þarf að panta veitingar?

    Fyrir hádegi daginn áður fyrir smærri fundi (10 manns). Með lengri fyrirvara fyrir stærri fundi/veislu. Sendið póst á hama@fs.is til að fá nánari upplýsingar.

    Leikskólar stúdenta

    Samkvæmt hvaða stefnu er unnið á Leikskólum stúdenta?

    Leikskólarnir starfa samkv. HighScope stefnunni. Nánari upplýsingar má finna hér

    Hverjir mega sækja um vistun fyrir börn sín á Leikskólum stúdenta?

    Ungbarnaskólarnir eru eingöngu fyrir börn stúdenta við HÍ. Allir geta sótt um á Mánagarði.

    Hvað þarf ég að vera í mörgum einingum til að fá námsmannaafslátt?

    Afslátt af námsgjaldi fá hjón og sambúðarfólk sem bæði uppfylla eftirtalin skilyrði:

    Eru í háskólanámi og skráðir í að lágmarki 22 ECTS einingar á önn. Taka þarf fram á vottorði frá skóla að um fullt nám sé að ræða.

    Eru í framhaldsskóla og skráðir í fullt nám að lágmarki 15 einingar á önn.

    Skila skal skólavottorði fyrirfram fyrir hverja önn þar sem fram koma upplýsingar um einingafjölda og staðfesting á því að um fullt nám sé að ræða.

    Nám sem tekið er gilt er það sama og nám sem lánshæft er hjá LÍN.

    Þurfa foreldrar að skila ákveðnum einingafjölda til að halda plássi fyrir börn á leikskólunum?

    Forsendur fyrir leikskólavist eru að foreldrar skili eðlilegri námsframvindu. Námsframvinda telst vera eðlileg ef foreldri lýkur a.m.k. 40 einingum á ári, eða 2/3 hlutum þess náms sem viðkomandi deild eða skor telur vera eins árs nám. Þar af þarf að ljúka a.m.k. 18 einingum á haustönn.Þó eru undantekningar á þessu, t.d. ritgerðaskrif, doktorsnám o.fl. Best er að vera í sambandi við leikskólastjóra ef ekki er hægt að uppfylla þessi skilyrði.

    Hvenær má sækja um fyrir barn á ungbarnaleikskóla?

    Þegar barnið hefur fengið kennitölu.

    Er systkinaafsláttur?

    Já, en mismunandi eftir sveitarfélögum. Hafið samband við viðkomandi sveitarfélag og/eða leikskólastjóra til að fá nánari upplýsingar.

    Fyrir hvaða aldur eru leikskólarnir?

    Sólgarður er ungbarnaleikskólar fyrir 6 mánaða til tveggja ára. Mánagarður er fyrir hefðbundinn leikskólaaldur.

    Hvar sæki ég um?

    Mánagarður

    Sólgarður

    Er boðið upp á hálfs dags vistun?

    Eingöngu er boðið upp á 8 tíma vistun (8 – 16) á ungbarnaskólunum en hægt er að velja 8, 8,5 eða 9 tíma vistun á Mánagarði.

    Sjá nánar á hér

    Stúdentagarðar

    Smelltu hér til að sjá algengar spurningar og svör.

    Stúdentakjallarinn

    Er hægt að bóka borð?

    Hægt er að bóka langborðið fyrir matargesti ef 10 eða fl. munu mæta. Til að bóka sendið póst á studentakjallarinn@fs.is

    Hvernig bóka ég viðburð?

    Sendu tölvupóst á studentakjallarinn@fs.is

    Starfsfólk FS

    Aðalskrifstofa FS

    fs@fs.is

    Guðrún Björnsdóttir

    Framkvæmdastjóri

    gudrun@fs.is

    Ingunn Elín Sveinsdóttir

    Mannauðsstjóri

    ingunn@fs.is

    Ólöf Dröfn Matthíasdóttir

    Aðalbókari og innra eftirlit

    olof@fs.is

    Valdís Elísdóttir

    Launa- og mannauðsfulltrúi

    valdis@fs.is

    Heiður Anna Helgadóttir

    Upplýsingafulltrúi

    heidur@fs.is

    Bryndís Pétursdóttir

    Bókari

    bryndis@fs.is

    Stúdentagarðar

    studentagardar@fs.is

    Heiður Anna Helgadóttir

    Þjónustustjóri og upplýsingafulltrúi

    heidur@fs.is

    Signý Gísladóttir

    Þjónustufulltrúi og innheimtufulltrúi

    signy@fs.is

    Julita Irena Figlarska

    Þjónustufulltrúi

    julita@fs.is

    Baldur Smári Gunnarsson

    Rekstrarstjóri – Umsjón fasteigna

    baldur@fs.is

    Geir Örn Ingvarsson

    Umsjónarmaður – Umsjón fasteigna

    geir@fs.is

    Gunnar Ellert Peiser Ívarsson

    Umsjónarmaður – Umsjón fasteigna

    gunnarellert@fs.is

    Magnús Orri Einarsson

    Tæknistjóri, nýframkvæmdir og viðhald

    magnus@fs.is

    Bóksala stúdenta

    boksala@boksala.is

    Anna Lára Árnadóttir

    Verslunarstjóri

    annalara@boksala.is

    Reinharð Reinharðsson

    Innkaup bóka

    reinhard@boksala.is

    Kristrún Rúnarsdóttir

    Afgreiðsla

    kristrun@boksala.is

    Edda Sól Ólafsdóttir Arnholtz

    Afgreiðsla

    edda@boksala.is

    Heiða

    Afgreiðsla

    Bryndís Margaret Davis

    Kaffibar

    Veitingasala: Háma og Stúdentakjallarinn

    hama@fs.is, studentakjallarinn@fs.is

    Ari Már Heimisson

    Yfirkokkur í Hámu

    ari@fs.is

    Agnes Huld Ragnarsdóttir

    Birgðabókhald

    agnes@fs.is

    Sveinn Þorgrímur Sveinsson

    Innkaup í Hámu

    grimur@fs.is

    Halldór Guðmundsson

    Yfirmaður á bar, bókun viðburða í Stúdentakjallara

    halldor@fs.is

    Marcin Nowakowskin

    Yfirmaður í eldhúsi Stúdentakjallara

    marcin@fs.is

    Leikskólar stúdenta

    Sigríður Stephensen

    Leikskólastjóri ungbarnaleikskólans Sólgarðs

    sigridur@fs.is

    Ásta Rós Snævarsdóttir

    Aðstoðarleikskólastjóri ungbarnaleikskólans Sólgarðs

    astaros@fs.is

    Soffía Emelía Bragadóttir

    Leikskólastjóri Mánagarði

    soffia@fs.is

    Íris Dögg Jóhannesdóttir

    Aðstoðarleikskólastjóri Mánagarði

    iris@fs.is

    Starfsmannastefna fs

    Leiðarljós Félagsstofnunar stúdenta (FS) er að auka lífsgæði stúdenta og vinna
    starfsmenn að því í sameiningu.

    Gildi FS eru:
    – Virk samvinna
    – Góð þjónusta
    – Jákvæð upplifun
    – Markviss árangur

    Starfsumhverfi

    FS leggur áherslu á gott starfsumhverfi, góðan starfsanda og vellíðan starfsmanna. FS tekur árlega þátt í könnun VR, Fyrirtæki ársins, og vinnur markvisst með niðurstöður hennar.

    Starfsfólki er sýnt traust, tillitsemi og hreinskilni. Starfsmenn sýna gagnkvæma virðingu í öllum sínum samskiptum. Lögð er áhersla á að starfsfólk hafi greiðar leiðir til að koma skoðunum sínum og viðhorfum á framfæri við stjórnendur.

    Stjórnun og upplýsingastreymi

    FS leggur áherslu á góða og nútímalega stjórnunarhætti, sem m.a. felast í jákvæðu viðhorfi til samstarfsmanna og virku upplýsingastreymi, í formi markvissra upplýsingagjafa t.d. á fundum, á samfélagsmiðlum og með tölvupósti. Starfslýsingar allra starfa eru aðgengilegar á innri vef FS.

    Starfsþróun

    FS veitir starfsmönnum tækifæri til að þroskast í starfi og auka þekkingu sína. Unnið er eftir fræðsluáætlun sem starfsmenn taka þátt í að móta.

    Stjórnendur og starfsmenn bera sameiginlega ábyrgð á viðhaldi menntunar og þekkingu starfsmanna. Starfsfólk er hvatt til að þróast og vaxa í starfi og eru starfsmannasamtöl vettvangur til að leggja drög að frekari þjálfun. Lögð er áhersla á að hjá stofnuninni starfi hæft starfsfólk með faglega þekkingu.

    Jafnvægi vinnu og einkalífs

    Leitast er við að koma til móts við starfsmenn varðandi sveigjanleika í starfi þar sem þarfir einkalífs og starfs fara saman.

    FS hvetur ávallt til þátttöku maka í félagslífi starfsmanna. Ef það á við er einnig hvatt til þáttöku barna.

    Jafnræði meðal starfsfólks

    Jafnræðis er gætt milli starfsmanna. Starfsfólki eru greidd sanngjörn laun fyrir störf
    sín. Einelti og kynferðisleg áreitni er ekki liðin innan stofnunarinnar.

    Móttaka nýliða

    Tekið er vel á móti nýjum starfsmönnum og þeim veittur stuðningur og þjálfun til
    þess að takast á við starfið. Lögð er áhersla á að starfsmaðurinn geri sér grein fyrir
    starfi sínu og markmiði stofnunarinnar. Nýir starfsmenn kynna sér hagnýtar
    upplýsingar í starfsmannahandbók í upphafi starfs. Starfsmannahandbókin er
    aðgengileg á innri vef FS.

    Öryggi og heilsuvernd

    FS leitast við að tryggja öryggi starfsfólks á vinnustað. Lögð er rík áhersla á að
    vinnuumhverfið fullnægi kröfum um vinnuvernd. Hjá FS starfar öryggisnefnd.

    Jafnlaunastefna fs

    Félagsstofnun stúdenta leggur áherslu á að vera eftirsóttur vinnustaður í huga allra og að öllu starfsfólki sé tryggt jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

    Jafnlaunakerfið nær til alls starfsfólks FS og er mannauðsstjóri ábyrgaðaraðili þess í umboði æðstu stjórnenda. FS skuldbindur sig til starfrækja jafnlaunakefi í samræmi við kröfur Jafnlaunastaðals ÍST 85:2012 og stuðla að stöðugum umbótum. Þetta felur m.a. í sér í sér reglubundnar innri úttektir, rýni stjórnenda og launagreiningar.

    Tryggt skal að jafnlaunakerfið sé í samræmi við viðeigandi lög og aðrar laglegar kröfur, reglugerðir og samninga. Brugðist skal við óútskýrðum kynbundnum launamuni og skulu helstu niðurstöður kynntar starfsfólki árlega. Jafnlaunastefnan skal kynnt starfsfólki og gerð aðgengileg almenningi á heimasíðu FS.

    1. júní 2023

    Mannauðsstefna FS

    Virk samvinna, góð þjónusta, jákvæð upplifun, markviss árangur

    Félagsstofnun súdenta (FS) byggir þjónustu sína á áhugasömu og hæfu starfsfólki sem hefur tækifæri til að rækta þekkingu sína og færni í jákvæðu starfsumhverfi. Mannauðstefnan byggir á fjórum gildum FS virk samvinna, góð þjónusta, jákvæð upplifun og markviss árangur sem er leiðarljós starfsfólks í daglegu starfi.

    Markmið FS er að skapa starfsmönnum jöfn tækifæri í öruggu og heilbrigðu starfsumhverfi enda vita stjórnendur að árangur í rekstri byggist á þekkingu og metnaði starfsfólks. Þess vegna vinnur FS að því að efla starfshæfni einstaklinga og hvetja þá til að nýta eigin áhuga og frumkvæði til þroska og persónilegra framfara. Lögð er sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga. Með þessum áherslum er leitast við að skapa eftirsóknarverðan vinnustað sem laðar að sér hæft starfsfólk sem vex,  dafnar og axlar ábyrgð.

    Mannauðstefna FS skiptist í þrjú hluta

    1. Mannauður
    2. Heilsuefling
    3. Vinnuvernd og öryggi

    MANNAUÐUR

    Mannauður FS þekking hans og færni, er mikilvægasta auðlind félagsins. Hópurinn samanstendur af ólíkum einstaklingum sem sinna mismunandi störfum og búa að ólíkri reynslu og þekkingu. Með sameiginlegum gildum stilltir hópurinn saman strengi, byggir öflugt félag og eftirsóknarverðan vinnustað með öflugri liðsheild og metnaði.

    Stjórnun

    Stjórnendur leitast við að laða fram það besta í starfsfólki, hvetja það og styðja með reglulegri endurgjöf og virku upplýsingaflæði. Þeir leggja sig fram um að byggja upp liðsheild sem sýnir áhuga, axlar ábyrgð og tekur virkan þátt í að byggja upp góðan vinnustað. Áhersla er lögð á góð samskipti og virkt upplýsingaflæði milli starfsmanna enda er það mikilvægur þáttur til þess að halda í gott starfsfólk. Til að ná árangri þurfa starfsmenn upplýsingar um hvernig þeir standa sig í starfi. Endurgjöf innan FS einkennist af hvatningu og hrósi fyrir góðan árangur, opinskárri og heiðarlegri umræðu og endurgjöf varðandi það sem betur má fara.

    Starfsmannaval

    Ólíkir einstaklinga með mismunandi reynslu og hæfileika eru lykillinn að velgengi FS. Vandað starfsmannaval tryggir að FS hefur rétt fólk á réttum stað. Metnaður er lagður í að taka vel á móti nýju samstarfsólki og veita því góðar upplýsingar og starfsþjálfun. Lögð áhersla á að nýir starfsmenn komist hratt og örugglega inn í starfið, viti til hvers er ætlast af þeim og læri þau vinnubrögð sem þarf að kunna skil á til að ná árangri. Mikilvægt að huga að fjölbreytni innan hópsins þegar staðið er frammi að velja nýjan einstakling í teymið. Þetta á bæði við innri og ytri ráðningar. Markmið FS er að hæfir starfsmenn veljist til starfa og þeir hafi metnað til að takast við þau verkefni sem bíða úrlausnar. Hjá FS skulu starfsmenn njóta sömu kjara og frá greidd sömu laun fyrir jafn verðmæt störf.

    HEILSUEFLING

    FS leitast við að stuðla að almennri vellíðan og góðri andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu starfsmanna sinna.  Aukin vellíðan leiðir af sér aukin lífsgæði og ánægðari starfsmenn.

    FS leggur áherslu á að auka þekkingu starfsmanna um mikilvægi heilsu og öryggis og leggur þar með sitt af mörkum til forvarna gegn atvinnutengdum álagseinkennum, slysum, fjarvistum og ótímabærum starfslokum vegna veikinda.

    VINNUVERND OG ÖRYGGI

    FS er umhugað um heilsu og öryggi starfsmanna sinna. FS býður upp á örugga og heilsusamlega vinnuaðstöðu sem frekast er kostur og leggur áherslu á að starfsmenn verndi sjálfa sig, samstarfsmenn, utanaðkomandi einstaklinga, vörur, búnað og umhverfi fyrir hvers konar skaða.

    ENDURSKOÐUN

    Mannauðsstefna FS er samþykkt af framkvæmdastjóra og er mannauðsstjóri eigandi hennar. Stefnan skal endurskoða á þriggja ára fresti og ber mannauðsstjóri ábyrgð á að endurskoðun eigi sér stað. Stefnan er aðgengileg starfsfólki á Workplace og heimasíðu FS.

    Persónuverndarstefna FS

    Persónuverndarstefna Félagsstofnunar stúdenta.

    Félagsstofnun stúdenta. kt. 540169-6249, Sæmundargötu 4, 101 Reykjavík (einnig vísað til „FS“) hefur einsett sér að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi persónuupplýsinga sem unnið er með innan félagsins.

    Persónuverndarstefna þessi nær til persónuupplýsinga einstaklinga sem eru í viðskiptum við FS, eða eru í forsvari fyrir lögpersónur í viðskiptum við FS og annarra samstarfsaðila sem og annarra sem eiga í samskiptum við félagið, s.s. vegna heimsókna á vefsíður FS, í tengslum við ábendingar eða styrkbeiðnir (hér eftir sameiginlega vísað til „viðskiptavina“ eða „þín“).

    Persónuverndarstefnu þessari er ætlað að upplýsa þig um hvaðpersónuupplýsingum félagið safnar, með hvaða hætti félagið nýtir slíkar persónuupplýsingar og hverjir fá aðgang að upplýsingunum.

    Sért þú í vafa um hvernig stefna þessi varðar þig, vinsamlega hafðu samband við persónuverndarfulltrúa, sbr.9.gr. fyrir frekari upplýsingar. Nánari samskiptaupplýsingar koma fram í lok stefnunnar.

    1. Tilgangur og lagaskylda

    Félagstofnun stúdenta leitast við að uppfylla í hvívetna persónuverndarlöggjöf og er stefna þessi byggð á lögum nr. 90/2018  um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga („persónuverndarlög“), með síðari breytingum.

    1. Hvað eru persónuupplýsingar?

    Persónuupplýsingar í skilningi stefnu þessarar eru hvers kyns upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling, þ.e. upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til ákveðins einstaklings. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar.

    1. Persónuupplýsingar sem Félagsstofnun stúdenta vinnur um viðskiptavini

    Við söfnum og varðveitum ýmsar persónuupplýsingar um viðskiptavini okkar. Ólíkum persónuupplýsingum kann að vera safnað um þig eftir því hvort þú sért sjálf/ur í viðskiptum við félagið eða hvort þú komir fram fyrir hönd lögaðila í viðskiptum við félagið, t.d. birgja.

    Umsóknir vegna leiguhúsnæðis:  Þegar þú sækir um leiguhúsnæði á vegum FS er óskað eftir nafni, kennitölu, netfangi, símanúmeri, skóla, stöðu náms, deild innan HÍ, upplýsingum um hvenær nám hófst og hvenær því lýkur.  Einnig er óskað eftir upplýsingum um maka og börn, ef það á við.  Þessar upplýsingar eru nýttar við úrvinnslu umsóknar.  Þessi vinnsla byggir á rafrænu samþykki þínu þegar umsókn er send inn.  Hægt er að óvirkja umsókn hvenær sem er.

    Umsóknir vegna vistunar á leikskólum FS: Þegar þú sækir um vistun á einum af þremur leikskólum FS þá flyst þú yfir á vinnslusvæði þriðja aðila, Karellen.  Óskað er eftir upplýsingum um nafn, kennitölu, heimilisfang, og póstfang barns.  Einnig er óskað eftir samskonar upplýsingum um foreldra barnsins ásamt netfangi, vinnustað og vinnusíma foreldris. Þessi vinnsla er nauðsynleg svo leikskólarnir geti starfsrækt lögbundið hlutverk sitt við umsjón og menntun þeirra barna sem vistuð eru á leikskólum FS.

    Samstarfsaðilar o.fl.: Komir þú fram fyrir hönd samstarfsaðila Félagsstofnunar stúdenta, s.s. birgja, verktaka eða viðskiptamann sem er lögaðili, kann FS að vinna með tengiliðaupplýsingar þínar, s.s. nafn, símanúmer og tölvupóstfang. Þá kann FS að vinna með samskiptasögu og eftir atvikum reikningsupplýsingar. Þessi vinnsla er FS nauðsynleg til að geta uppfyllt skyldur sínar á grundvelli samnings við viðkomandi samstarfsaðila. Þá kann félaginu að vera skylt að vinna með upplýsingar á grundvelli lagaskyldu, s.s. bókhaldslaga sbr. 20 gr. laga 145/1994.

    Kvartanir og ábendingar: Ef þú sendir okkur ábendingu eða kvörtun mun FS almennt vinna með tengiliðaupplýsingar þínar, s.s. nafn og netfang, og efni þeirrar kvörtunar eða ábendingar sem þú hefur kosið að koma á framfæri.

    Markpóstur FS kann að dreifa fréttabréfum sem og boð á viðburði og námskeið á vegum félagsins á tengiliði sem eru á tölvupóstfangalista félagsins.  Vinnsla tölvupóstfanga í þeim tilgangi er byggð á lögmætum hagsmunum félagsins af markaðssetningu og því að tryggja viðskiptavinum félagsins fyrirmyndar þjónustu.  Ef þú óskar ekki eftir því að vera á tölvupóstlista FS getur þú ávallt afskráð þig.  Þá minnir félagið jafnframt tengiliði á tölvupóstlista félagsins, reglulega á rétt þeirra til afskráningar af tölvupóstlistanum

    Styrkumsóknir: Í tengslum við styrkumsóknir vinnur FS með tengiliðaupplýsingar, s.s. nafn, kennitölu, netfang og símanúmer sem og aðrar upplýsingar sem sendar eru félaginu í slíkri umsókn. Vinnsla þessi fer fram á grundvelli beiðni þinnar um að gera samning um styrkveitingu við félagið.

    Auk framangreinds kann FS einnig að safna upplýsingum og vinna eða geyma upplýsingar sem viðskiptavinir eða forsvarsmenn/tengiliðir viðskiptavina láta félaginu sjálfir í té ýmist að eigin frumkvæði, hvort heldur sem er vegna umsókna, eða til að FS geti efnt formlega og óformlega samninga við viðskiptavini og sinnt öðrum þeim skyldum sem leiða af þjónustu við viðskiptavini. Einnig fer vinnslan fram á grundvelli lögmætra hagsmuna FS af að tryggja að viðskiptavinir fái góða þjónustu. Þá kunna upplýsingar að vera unnar á grundvelli lagaskyldu og óháð þeirri þjónustu sem félagið hefur tekið að sér að veita viðskiptavinum,sbr. t.d. vegn ákvæða bókhaldslaga o.fl.

    Að meginstefnu til aflar Félagsstofnun stúdenta persónuupplýsinga beint frá viðskiptavini eða forsvarsmanni viðskiptavinar. Upplýsingar kunna þó jafnframt að koma frá þriðju aðilum. Sé persónuupplýsinga aflað frá þriðja aðila mun FS leitast við að upplýsa viðskiptavini sína um slíkt.

    Upplýsingar um viðskiptavini og forsvarsmenn/tengiliði viðskiptavina eru varðveittar í 4 ár frá lokum viðskipta eða frá lokum viðskiptasambands ef um viðvarandi viðskiptasamband hefur verið að ræða. Þá kunna lágmarksupplýsingar um leigutaka að vera geymdar lengur í samræmi við skilmála í samningum um leiguhúsnæði. Sé um að ræða upplýsingar sem falla undir bókhaldslög eru þær varðveittar í 7 ár frá lokum viðkomandi reikningsárs. Vissar upplýsingar kann að vera nauðsynlegt að varðveita lengur, t.d. ef líkur standa til að FS komi til með að þurfa að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur. Í þeim tilfellum verður varðveislutími miðaður við reglur um fyrningarfrest krafna.  Hins vegar kann upplýsingunum að vera eytt fyrr, eftir því sem við á, í samræmi við eyðingastefnu eða rekstrarhagkvæmi.

    1. Miðlun til þriðju aðila

    Félagsstofnun stúdenta kann að miðla persónuupplýsingum þínum til þriðju aðila, þ.e. til innheimtuaðila eða aðila sem sjá um upplýsingatækniþjónustu eða annars konar ráðgjöf fyrir hönd félagsins.

    Persónuupplýsingar þínar kunna jafnframt að vera afhentar þriðja aðila að því marki sem heimilað er eða krafist á grundvelli viðeigandi laga eða reglna, s.s. til Ríkisskattstjóra eða annarra eftirlitsaðila. Það sama kann að eiga við sé afhendingar krafist á grundvelli dómsúrskurða eða reynist miðlun nauðsynleg þannig að félagið geti gætt hagsmuna sinna í ágreinings- eða dómsmálum.

    Félagsstofnun stúdenta mun þó ekki miðla persónuupplýsingum utan Evrópska efnahagssvæðisins nema slíkt sé heimilt á grundvelli viðeigandi persónuverndarlöggjafar, s.s. á grundvelli staðlaðra samningsskilmála, samþykki þíns eða auglýsingar Persónuverndar um ríki sem veita persónuupplýsingum fullnægjandi vernd.

    1. Hvernig er öryggi persónuupplýsinga tryggt?

    Félagsstofnun stúdenta leitast við að grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulegra ráðstafana til að vernda persónuupplýsingar með sértöku tilliti til eðlis þeirra. Þessum ráðstöfunum er ætlað að vernda persónuupplýsingar gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi, afritun, notkun eða miðlun þeirra.

    1. Breytingar og leiðréttingar á persónuupplýsingum

    Það er mikilvægt að þær persónuupplýsingar sem FS vinnur með séu bæði réttar og viðeigandi. Því er mikilvægt að FS sé tilkynnt um allar breytingar sem kunna að verða á persónuupplýsingum þínum.

    Þú átt rétt á því að óáreiðanlegar persónuupplýsingar um þig séu leiðréttar. Að teknu tilliti til tilgangs vinnslu persónuupplýsinga átt þú jafnframt rétt á að láta fullgera ófullkomnar persónuupplýsingar um þig, þ.m.t. með því að leggja fram frekari upplýsingar.

    Vinsamlega beindu öllum uppfærslum til persónuverndarfulltrúa, sbr.9.gr.

    1. Réttindi þín hvað varðar þær persónuupplýsingar sem félagið vinnur

    Þú átt rétt á að fá staðfest hvort við vinnum persónuupplýsingar um þig eða ekki, og ef svo er getur þú óskað eftir aðgangi að upplýsingunum og hvernig vinnslunni er hagað. Þá kann einnig að vera að þú hafir rétt á að fá afrit af upplýsingunum. Við ákveðnar aðstæður getur þú farið fram á það við félagið að við sendum upplýsingar, sem þú hefur sjálf/ur látið okkur í té eða stafa frá þér, beint til þriðja aðila.

    Við ákveðnar aðstæður getur þú óskað eftir því að persónuupplýsingum um þig verði eytt án tafar, til að mynda þegar að varðveisla upplýsinganna er ekki lengur nauðsynleg miðað við tilgang vinnslunnar eða vegna þess að þú hefur afturkallað samþykki þitt fyrir vinnslu persónuupplýsinganna og engin önnur heimild liggur til grundvallar henni. Sé vinnslan byggð á samþykki er þér hvenær sem er heimilt að afturkalla samþykki þitt.

    Viljir þú ekki láta eyða upplýsingum þínum, t.d. vegna þess að þú þarft á þeim að halda til að verjast kröfu, en vilt samt sem áður að þær séu ekki unnar frekar af hálfu félagsins getur þú óskað eftir því að vinnsla þeirra verði takmörkuð.

    Sé vinnsla á persónuupplýsingum þínum byggð á lögmætum hagsmunum FS átt þú einnig rétt á að mótmæla þeirri vinnslu.

    Framangreind réttindi þín eru þó ekki fortakslaus. Þannig kunna lög að skylda FS til að hafna ósk um eyðingu eða aðgang að gögnum. Þá getur félagið hafnað beiðni þinni vegna réttinda félagsins, s.s. á grundvelli hugverkaréttar, eða réttinda annarra aðila, s.s. til friðhelgi einkalífs, telji félagið þau réttindi vega þyngra.

    Ef upp koma aðstæður þar sem að félagið getur ekki orðið við beiðni þinni mun félagið leitast við að útskýra hvers vegna beiðninni hefur verið hafnað, þó með tilliti til takmarkana á grundvelli lagaskyldu.

    1. Fyrirspurnir og kvörtun til Persónuverndar

    Ef þú vilt nýta þér þau réttindi sem lýst er í 7. gr. í stefnu þessari, eða ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi persónuverndarstefnu þessa eða það hvernig félagið vinnur með persónuupplýsingar þínar, vinsamlegast hafðu samband á fs@fs.is.

    Ef að þú ert ósátt/ur við vinnslu félagsins á persónuupplýsingum getur þú sent erindi til Persónuverndar (www.personuvernd.is).

    1. Samskiptaupplýsingar

    Við höfum tilnefnt Ingunni Sveinsdóttur mannauðsstjóra FS  til að hafa umsjón með eftirfylgni þessarar persónuverndarstefnu. Hér fyrir neðan má finna samskiptaupplýsingar hans:

    Samskiptaupplýsingar um félagið:
    personuvernd@fs.is
    Félagstofnun stúdenta
    Sæmundargötu 4
    101 Reykjavík . Sími: 5700700

    1. Endurskoðun

    Félagsstofnun stúdenta getur frá einum tíma til annars breytt persónuverndarstefnu þessari í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum eða reglugerðum eða vegna breytinga á því hvernig félagið vinnur með persónuupplýsingar.

    Allar breytingar sem kunna að verða gerðar á stefnunni taka gildi eftir að uppfærð útgáfa hefur verið birt á heimasíðu félagsins.

    Þessi persónuverndarstefna var sett þann 1.desember 2019

    Styrkir FS

    FS styrkir Stúdentaráð Háskóla Íslands og félög stúdenta við HÍ með útgáfustyrkjum, í tengslum við viðburði ofl. Fylltu út formið hér að neðan til að sækja um almennan styrk.

    Almennir styrkir

      This site is protected by reCAPTCHA and the Google
      Privacy Policy and
      Terms of Service apply.

      Sækja um starf

      Starfsmenn Félagsstofnunar stúdenta erum um 150 talsins og starfa allir eftir sama leiðarljósi, sem er að auka lífsgæði stúdenta.

      Gildin okkar eru fjögur:

      • Virk samvinna
      • Jákvæð upplifun
      • Góð þjónusta
      • Markviss árangur

      Laus störf hjá FS eru auglýst á atvinnuleitarmiðlinum Alfreð og öðrum atvinnumiðlunum eða í atvinnuauglýsingum dagblaða. Til að leggja inn almenna umsókn eða grennslast fyrir um laus störf, sendið póst á Ingunni Elínu Sveinsdóttur, mannauðsstjóra, ingunn@fs.is

      Háskólatorg

      Hjarta háskólasamfélagsins

      Háskólatorgið er staðsett miðsvæðis á háskólalóðinni, á milli Aðalbyggingar og íþróttahúss HÍ, en aðkoma að húsinu er einnig frá Suðurgötu. Innangengt er í bygginguna úr nokkrum byggingum á svæðinu og stutt úr öðrum. Háskólatorgið er samkomustaður stúdenta og starfsfólks HÍ og þangað sækir fjöldi fólks daglega til að hittast og nærast.

      Í húsinu er að finna helstu þjónustueiningar FS og Háskóla Íslands, þjónustuborð HÍ, lesstofur, kennslu- og fyrirlestrarsali. Á torginu er svið sem nýtist fyrir stóra viðburði og salur fyrir samkomur og smærri viðburði. Anna Birna Halldórsdóttir, abh@hi.is, sér um bókanir viðburða á Háskólatorgi.

      Starfsemi FS í Háskólatorgi: Skrifstofur FS og Stúdentagarða eru á 3. hæð, Bóksala stúdenta, Bókakaffi stúdenta, Kaupfélag stúdenta, Háma og Háma salatbar á 2. hæð og Stúdentakjallarinn á fyrstu hæð.